Björn Bjarnason varalið

Mín skoðun er sú að við ættum að að hlusta á háttvirtan þingmann Björn Bjarnason ,það má ekki mikið útaf bera ef eitthvað stærra slys yrði þá gætu ýmsir hlutir farið handaskolum ef ekki væri nóg af mannskap. þó svo að Björgunarsveitirnar standa allltaf fyrir sínu, þá tel ég ekki spurningu að ríkið þarf að vera betur  mannað. ,hlustum og sjáum hvað Björn hefur fram að færa.
mbl.is Heimild til að kalla út varalið hefði komið sér vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Já og svo þegar búið er að manna varalið (sem kemur hvaðan) og þarf síðan að senda eitthvað kemur í ljós að (hvaðan koma þeir) það er enginn manskapur til staðar.

Ísland er fámenn þjóð og flestir sem koma að svona málum eru hvort eð er nú þegar starfandi sem lögreglumenn, slökkviliðsmenn, sjúkraflutningamenn, björgunarsveitarfólk, Rauðakrossfólk, og svo má halda áfram.

Hvaðan eiga varaliðsmenn að koma?

Ólafur Björn Ólafsson, 1.6.2008 kl. 23:15

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Allan tímann sem hjálparstarf stóð yfir var til staðar öflugt borgaralegt varalið skipað sjálfboðaliðum. Með því á ég við alla þá íbúa hér á Suðvesturhorninu sem héldu sig á mottunni á meðan stór hluti lögregluliðsins var upptekinn fyrir austan fjall. Ég veit ekki til þess að það hafi þurft að kalla neinn út sérstaklega til þess að allt færi friðsamlega fram rétt eins og á venjulegum degi, enda var okkur Reykvíkingum líka brugðið við hristinginn og hugur flestra hjá íbúum Suðurlandsundirlendisins. Við Íslendingar erum nefninlega aldrei samhentari heldur en einmitt þegar náttúruöflin sýna okkur mátt sinn og megin, af því megum við sko vera stolt. Sjálfur fór ég t.d. út úr bænum og hélt norðaustur á bóginn þar sem löggurnar voru síst uppteknar vegna jarðskjálfta enda var víða sýnilegt umferðareftirlit á vegunum. Eins og fram kom annarsstaðar á blogginu þá væri miklu meira vit í að styrkja og efla hjálparsveitirnar sjálfar, frekar en að fjölga þessum blessuðu laganna "vörðum" sem ráðast svo kannski bara á unglinga í kjörbúðum, spreyja piparúða framan í saklaust fólk á bensínstöðvum, fara með samsæri og tilhæfulausum ásökunum gegn fólki sem þorir að segja upphátt skoðun sína á umhverfismálum, hnýsast ítrekað með ólöglegum hætti í stjórnarskrárvarið einkalíf fólks, og almennt hafa grundvallarréttindi samborgaranna að engu. Af slíkum óþverravinnubrögðum íslenskrar lögreglu hef ég ítrekaða persónulega reynslu af misslæmu tagi auk þess sem öll tilvikin sem ég nefndi hér á undan eru staðfest og skjöluð!. Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á annað verður maður að taka þessi ummæli Björns eins og hvern annan fasista-áróður sem hann lætur frá sér fara, og í þetta sinn af fullkomnu virðingarleysi fyrir því áfalli sem dundi á Sunnlendingum. Megi það verða honum til ævarandi minnkunar að hafa ætlað að nota þessar hamfarir sem enn eitt tilefnið til slíkrar áróðursstarfsemi fyrir öfgasinnaðri hugmyndafræði sinni. Fyrst honum þykir hugmyndir um lögregluríki svona heillandi ætti hann bara að flytja vestur um haf í það "sæluríki" öfganna og láta okkur friðelskandi Íslendinga í friði, um aldur og ævi!!! A.m.k. ráðlegg ég honum að vera ekkert að heimsækja Selfyssinga á næstunni... ég held þeir vilji miklu frekar fá aðstoð við að laga húsin sín en fá yfir sig meiri löggufasisma en nú þegar viðgengst hér á landi.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2008 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mitt álit

Höfundur

Byggir
Byggir

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband